Hrátóbakið sem notað er í íslenska neftóbakið kemur annars vegar frá Swedish Match í Svíþjóð og hins vegar frá Danmörku. Swedish Match er aðalframleiðanda sænska munntóbaksins sem kallast snus.
Snusið inniheldur blöndu af hrátóbaki (möluð tóbakslauf), vatni, salti, natrín karbónati (Na2CO3), bragðefnum og rakae...
Nýlegt bann Evrópusambandsins við markaðssetningu ryksugna sem eru 1600 vött eða meira er ávöxtur tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins um visthönnun vöru sem notar orku (nr. 2009/125). Markmið tilskipunarinnar er að efla vernd umhverfisins með því draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum þeirra vara sem nota orku. Til...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Hæ hæ, hver er uppruni G-mjólkur, af hverju heitir hún G-mjólk og hvað gæti hún mögulega enst lengi?
G-ið í heiti G-mjólkur stendur fyrir geymsluþol. Mjólk sem seld er í verslunum er gerilsneydd með hitameðhöndlun til að drepa örverur sem gætu valdið sýkingum í þeim er neyta h...
Munurinn á kexi og brauði liggur fyrst og fremst í vatnsinnihaldinu. Samkvæmt Íslenska gagnagrunninum um efnainnihald matvæla (ÍSGEM) þá er heildarvatnsinnihald í kexi um það bil 2-5% meðan brauð inniheldur 35-50% raka.
Heildarvatnsinnihald segir þó ekki alla söguna. Vatnið í matnum okkar er tvenns konar. Annar...
Skýringin á þessu er í raun sú sama og á því að smásöluverð er alla jafna hærra en heildsöluverð á vörum. Það fylgir því einhver kostnaður að versla með allar vörur og sá kostnaður rekur fleyg milli kaup- og söluverðs. Hversu stór þessi fleygur er fer eftir ýmsu, til dæmis því hve erfið vara er í meðförum, hve stó...
Hagfræðingar verja drjúgum tíma í að skoða tvíburana framboð og eftirspurn og er oft rætt um lögmál í því samhengi. Er því þannig haldið fram að um eftirspurn gildi það lögmál að því hærra sem verð tiltekinnar vöru eða þjónustu sé því minni verði eftirspurnin. Sömuleiðis er því iðulega haldið fram að því hærra sem...
Kolefnisspor (e. carbon footprint) er mælikvarði fyrir losun gróðurhúsalofttegunda vegna athafna mannsins. Helstu gróðurhúsalofttegundirnar sem taldar eru inn í kolefnissporið eru:Koltvísýringur (CO2)
Metan (CH4)
Hláturgas (N2O)
Óson (O2)
Vetnisflúorkolefni (HFC)
Perflúorkolefni (PFC)
Brennisteinshexaflúorí...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svona: Hvað greiðir ríkissjóður árlega mikið í formi beinna og óbeinna styrkja til landbúnaðar á Íslandi?
Í aðdraganda og kjölfar seinni heimstyrjaldarinnar óttuðust stjórnvöld víða um heim að standa frammi fyrir matarskorti. Tollar á landbúnaðarafurðir voru hækkaðir í þeirri v...
Hugtakið fíkn (e. addiction) er notað í lýðheilsu- og geðlæknisfræðum yfir áráttuhegðun sem fólk hefur ekki vald yfir. Í þeim skilningi er hæpið að tala um skófíkn sem oftast vísar ekki til alvarlegra ástands en þess að hafa gaman af tísku og fallegum fötum. Hins vegar leika skór stórt hlutverk í neyslumenningu s...
Bæði harðfiskur og skreið er fiskur sem búið er að þurrka. Á árum áður voru hugtökin harðfiskur eða hertur fiskur notuð um allan þurrkaðan fisk, þar meðtalda skreið. Nú er hins vegar merkingarmunur á þessu tvennu.
Þegar rætt er um skreið nú á tímum er átt við hausaðan, slægðan og þurrkaðan bolfisk. Algengast er...
Þegar viðtakendur auglýsinga kunna vel að meta liti og/eða tónlist í auglýsingum þá munu þeir, að öllu jöfnu, kunna vel við skilaboð auglýsingarinnar, vöruna eða þann aðila sem er auglýstur (Perloff, 2003). Í slíkum tilvikum er hlutlaust áreiti (til dæmis varan), sem viðkomandi hefur enga sérstaka skoðun á, tengt...
Inngangur
Öll matvæli skemmast fyrr eða síðar og fyrir flesta takmarka skemmdir endingartíma matvæla. Við skemmdir breytast ákveðnir eiginleikar matvæla þannig að þau eru ekki lengur boðleg til neyslu. Mjög oft stafa skemmdir af völdum örvera en einnig geta matvæli orðið óhæf til neyslu vegna ýmissa óæskilegra...
Gas eða lofttegund er efni í gasham við aðstæður sem ríkja í andrúmslofti jarðar, það er um einnar loftþyngdar þrýsting og hitastig milli - 50°C til + 50°C. Orðið gas hefur lengi verið notað einungis yfir brennanlegar gastegundir. Iðnaðarmenn hafa kallað asetýlengas og súrefni, gas og súr, en það er notað við logs...
Allmargir hafa sent Vísindavefnum spurningar um kollagen. Hér er mörgum þeirra svarað, þeirra á meðal: Er það sannað að kollagen sé eins hollt og gagnlegt og framleiðendur fæðubótarefna vilja meina? (Yrsa Rún) Hvað er kollagen? (Ólafur Tumi) Getið þið sagt mér hvað kollagen gerir? (Bragi) Getur það gert gagn að in...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!